10.01.1945
Neðri deild: 101. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í C-deild Alþingistíðinda. (2572)

125. mál, alþýðutryggingar

Frsm. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Herra forseti. — Heilbr.- og félmn. leggur til, að frv. þetta verði afgreitt með rökst. dagskrá, eins og tekið er fram í nál. Þar eru og greindar þær ástæður, er til þess liggja. N. vill fyrir sitt leyti ekki leggja dóm á frv. eins og það liggur fyrir, en telur ekki rétt að taka fram fyrir hendur mþn. í þessu máli.

Ég sé ekki ástæðu til að ræða þetta frekar að svo stöddu.