10.01.1945
Neðri deild: 101. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 92 í C-deild Alþingistíðinda. (2575)

125. mál, alþýðutryggingar

Skúli Guðmundsson:

Háttv. frsm. n. kemur sér hjá því að ræða þetta mál efnislega, enda mundi hann vart hafa komizt hjá að viðurkenna réttmæti þess, ef hann hefði athugað það eins og hann átti að gera.

Hann kveður álit mþn. koma einhvern tíma. En rétt er að minna á það, að síðasta Alþingi gerði breytingar á tryggingalöggjöfinni, enda þótt hún væri til athugunar í milliþinganefnd.