14.02.1945
Efri deild: 127. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 104 í C-deild Alþingistíðinda. (2601)
280. mál, útsvör
Frsm. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Allshn. hefur athugað þetta mál og rætt það allýtarlega og átt tal við flm. þess, hv. þm. Barð. En að þessari athugun lokinni taldi n. ekki fært að mæla með samþ. frv., heldur leggur til, að það verði afgr. með rökst. dagskrá, þar sem fram kemur áskorun til hæstv. ríkisstj. um, að hún taki til endurskoðunar fyrir næsta þ. lagafyrirmælin um útsvarsskyldu og skiptingu útsvara og leggi frv. um það fyrir Alþ.
Það var skoðun nm. allra, að þessi lagafyrirmæli séu í einstökum atriðum bæði óljós og ekki í alla staði hagkvæm, og sé því nauðsynlegt að endurskoða þau rækilega. Hins vegar telur n. ekki fært að taka eitt atriði út úr með þeim hætti, sem lagt er til í frv., og setja sérákvæði um það, með því að þá væri þessum fyrirmælum ruglað enn þá meira en áður og möguleikar dómstólanna til þess að kveða á um raunverulegt heimilisfang í einstökum tilfellum mjög skertir frá því, sem nú er, en að sjálfsögðu hljóta dómstólarnir að eiga að skera úr um það atriði, og er ekki ástæða fyrir löggjöfina að taka fram fyrir hendur dómstólanna í þessu efni.
Að öðru leyti get ég látið nægja að vísa til nál. og hinnar rökst. dagskrár, sem þar er prentuð, en vil leggja áherzlu á, að nm. telja miklu máli skipta, að hæstv. ríkisstj. láti endurskoðun þessara lagafyrirmæla eiga sér stað, sem farið er fram á með rökst. dagskránni, og vona, að hv. d. geti fallizt á samþ. hennar.