27.11.1944
Neðri deild: 82. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 125 í C-deild Alþingistíðinda. (2681)

104. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum

Sigfús Sigurhjartarson:

Rétt er, að það komi skýrt fram, að mþn. í skólamálum hefur ekki látið beint álit í ljós um þetta mál enn. Hún hefur rætt það á einum fundi, en þótti ekki tímabært þá að taka ákvörðun. Hún mun nú taka það til meðferðar og reyna að finna á því þá skynsamlegustu lausn, sem henni virðist fáanleg að sinni.