26.02.1945
Efri deild: 136. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í C-deild Alþingistíðinda. (2790)

129. mál, jarðræktarlög

Eiríkur Einarsson:

Þó að ég hafi hér sérstaka till. um gang málsins, sem nýbúið er að fella, sé ég mér fært að greiða atkv. með þessari dagskrártill., þar sem ekki bar annað á milli en að mér fannst hressilegra orðalag á minni till. og að hún hafi gefið frekar bendingu í framkvæmdaáttina. Ég segi já.