06.02.1945
Neðri deild: 122. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 209 í C-deild Alþingistíðinda. (2803)

244. mál, vernd barna og ungmenna

Sigurður Thoroddsen:

Herra forseti. — Umr. um þetta mál var frestað í gær eftir beiðni hæstv. dómsmrh. út af 16. gr., sem sakadómari hafði talið, að gæti orkað tvímælis. Heilbr.- og félmn. hefur tekið þetta til greina og flytur á þskj. 1037 brtt., þar sem bætt er úr þessu.