06.02.1945
Neðri deild: 122. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 210 í C-deild Alþingistíðinda. (2804)

244. mál, vernd barna og ungmenna

Sigurjón Á. Ólafsson:

Herra forseti. — Það eru örfá orð. Það vill svo til, að ég hef ekki tekið þátt í afgr. þessa máls nema að örlitlu leyti. N. mun hafa verið búin að fara gegnum það, áður en ég tók þar sæti. Ég kvaddi mér hljóðs vegna þess, að brtt., sem hér liggja fyrir á tveimur þskj., 1024 og 1037, eru stílaðar frá n. Það þykir kannske formsatriði, en ég kannast ekki við, að öll n. flytji þessa till. Mér er ókunnugt um, að n. hafi rætt um þetta atriði, og tel því ekki rétt, að þetta sé borið fram í nafni n.