06.02.1945
Neðri deild: 122. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 210 í C-deild Alþingistíðinda. (2805)

244. mál, vernd barna og ungmenna

Sigurður Thoroddsen:

Hvað við kemur síðustu brtt., þá er ég hræddur um, að ég verði að bera fram afsökun við hv. síðasta ræðumann, því að ég náði ekki til hans til að bera brtt. undir hann, en brtt. er ekki nema sjálfsögð leiðrétting. Hins vegar bar ég hana undir hv. 2. þm. N.-M., svo að það er rétt, að hún sé stíluð frá n. En viðvíkjandi hinni brtt., þá get ég tekið fram, að það hefur ekki náðst í þennan hv. þm., en ég veit, að hinir nm. hafa verið henni sammála.