22.11.1944
Neðri deild: 80. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 232 í C-deild Alþingistíðinda. (2831)

145. mál, iðnaðarnám

Forseti (JörB):

Þetta mál var tekið á dagskrá sakir þess, að nál. var komið fram, en mér var hins vegar ekki kunnugt um, hvort nál. væri væntanlegt frá minni hl. En þar sem nokkuð sérstaklega stendur á um það, að minni hl. n. hefur ekki gefið út álit, vil ég mæta ósk hæstv. ráðh. um það, að málið verði ekki afgr. við þessa umr. nú. En ég vil mega vænta þess, að álit komi innan stutts tíma.