30.01.1945
Neðri deild: 115. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1251 í B-deild Alþingistíðinda. (3012)

194. mál, eyðing á rottum

Sigurður Bjarnason:

Ég vil aðeins taka það fram, að það er ekki af því, að ég vilji halda neinum hlífiskildi yfir þessum kvikfénaði, að ég greiði þannig atkv., heldur er það vegna þess, að ég tel óeðlilegt, að ríkissjóður sé látinn greiða hlut í þessum kostnaði, og segi því nei.