12.12.1944
Efri deild: 86. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1256 í B-deild Alþingistíðinda. (3090)

214. mál, útsvör

Gísli Jónsson:

Herra forseti. — Ræða hæstv. ráðh. staðfesti það, sem ég sagði, að þetta mál er aðeins undirbúið af öðrum aðilanum, og það er rangt. Ég undrast það, að hæstv. ráðh. sagði, að þetta hefði ekki aukna vinnu í för með sér fyrir fyrirtækin, og hlýtur slíkt að vera sprottið af vanþekkingu. Ég þekki þetta ekki síður en hæstv. ráðh.; ég hef haft með höndum umfangsmikinn atvinnurekstur og veit, hvílíka vinnu þetta útheimtir allt árið. Ég legg því eindregið til, að þetta verði sent hinum aðilanum til umsagnar.