23.10.1944
Neðri deild: 69. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 344 í C-deild Alþingistíðinda. (3095)

140. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. (Jón Pálmason.):

Herra forseti. — Hv. þm. hafa sjálfsagt gert sér grein fyrir því, að þetta frv. er staðfesting á brbl., sem gefin voru út af fyrrverandi ríkisstjórn á s. l. vori, og fjalla þau um heimild til að breyta fresti þeim, sem settur er varðandi skattaframtöl, og er frv. þess vegna búið að gera sitt gagn. En vegna formshliðarinnar þarf að samþ. það hér á Alþ.

Ég sé ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum.