15.12.1944
Neðri deild: 93. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1270 í B-deild Alþingistíðinda. (3131)

225. mál, prófessorsembætti dr. Sigurðar Nordals

Frsm. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. — Menntmn. hefur á fundi í gær orðið sammála um, að þetta frv. yrði samþ. óbreytt. Einn nm., hv. þm. N.-Ísf., var ekki viðstaddur á fundi vegna annarra nefndarstarfa og tók því ekki þátt í afgreiðslu málsins.