31.01.1945
Efri deild: 115. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1342 í B-deild Alþingistíðinda. (3373)

221. mál, sjúkrahús o.fl.

Bernharð Stefánsson:

Ég er hæstv. forseta ekki sammála um, að atkvgr. geti ekki farið fram um brtt. 955. Það, sem þessar tvær till. fara fram á, getur vel farið saman. Ég skal að vísu játa það,. að orðalagi þarf e.t.v. að breyta. En efnislega, getur það mjög vel farið saman, að ef sveitar- eða, bæjarfélag, sem sjúkrahúsið er reist í, óskar eftir þátttöku fleiri, þá sé það einnig bundið því skilyrði. að nærliggjandi sveitarfél. óski eftir þátttöku.