15.09.1944
Neðri deild: 50. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 386 í C-deild Alþingistíðinda. (3403)
117. mál, bráðabirgðaverðlag landbúnaðarafurða
Áki Jakobsson:
Það er að því leyti óþarfi að segja nokkuð um þetta mál, að mikið er búið að ræða það af flm. þess, að vísu ekki í hv. d., heldur í Sþ. Það er ekki ástæða til annars en vísa málinu til 2. umr. og til athugunar í nefnd. Það, sem búið er að samþ., stendur aðeins til 8 daga og viðbúið er, að á þessu frv. sem l. þurfi að halda — það veit maður ekki enn þá. Ég legg því til, að málinu verði vísað til 2. umr. og n., því að það hefur ekki verið rætt svo ýtarlega í n., þó að það hafi komið til n. efnislega.