09.03.1944
Neðri deild: 29. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 221 í B-deild Alþingistíðinda. (341)

27. mál, skipun læknishéraða

Páll Zóphóníasson:

Enda þótt ég álíti það rangt, sem fram kemur í þessu, að búa til „pappírs“-læknishéruð, sem engir læknar fást til að þjóna, þá hefur þó meiri hl. þingsins alveg gengið inn á þá stefnu, og þar sem mér finnst nóg að láta það standa, sem í frv. er, þá segi ég já.