09.03.1944
Neðri deild: 29. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 221 í B-deild Alþingistíðinda. (344)

27. mál, skipun læknishéraða

Gunnar Thoroddsen:

Eins og ég tók fram í umr. í gær, viðurkenndi ég fullkomlega, að þörf kynni að vera fyrir þessa breyt., sem hér um ræðir. En ég tel hins vegar málinu stefnt í tvísýnu með því að samþ. þessa breyt. nú á síðustu stundu, og enn fremur veit ég, að mestur þorri þeirra þm., sem greiða atkv. með þessari breyt., gerir það í því eina skyni að eyða því, og þess vegna segi ég nei.

Brtt. 218 (6) felld með 17:15 atkv.

Frv. samþ. með 19:6 atkv. og afgr. sem lög frá Alþingi (A. 223).