04.12.1944
Efri deild: 81. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 559 í C-deild Alþingistíðinda. (3735)

155. mál, nýbyggingarsjóður útvegsmanna

Frsm. (Gísli Jónsson):

Út af þessum orðum hv. síðasta ræðumanns skal ég leyfa mér að upplýsa, að þetta var rætt í sjútvn. í morgun, og það þótti rétt að láta breyt. á þessari gr. bíða þangað til þetta mál fengi nánari athugun á milli umr., því að það var álitið, að það gæti komið til mála að breyta orðalagi 2. gr. Þess vegna þótti ekki rétt að fara fram á fleiri breyt. á þessu stigi málsins. Þetta vil ég láta koma fram til skýringar.