15.12.1944
Neðri deild: 93. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1408 í B-deild Alþingistíðinda. (3847)
227. mál, hlutafjárframlag fyrir h/f Skallagrím í Borgarnesi
Páll Zóphóníasson:
Þetta frv. mun fara til n. Ég vil leyfa mér að benda n. á eitt atriði í þessu máli, sem ég skal ekki að þessu sinni leggja dóm á efnislega, en ég held sé varhugavert. Það er gert ráð fyrir, að varasjóði verði úthlutað sem bréfum. Þetta er algerlega óleyfileg úthlutun á fé úr varasjóði, en hvort þingið vill veita þessa undanþágu vegna þarfarinnar, dæmir það um. En ef hún á að veitast, þá þarf að orða frv. öðruvísi, því að eins og frv. er nú, þá yrðu það ekki þessi bréf, sem yrðu skattlögð, heldur varasjóður, og það verður þá að leyfa þessar ráðstafanir án þess að leggja skatt á þetta fé. Þetta vil ég benda n. á, ef þingið vill ganga inn á þessa braut, sem ég tel mjög varhugavert.