11.01.1945
Neðri deild: 102. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1427 í B-deild Alþingistíðinda. (3894)

235. mál, skipakaup ríkisins

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. — Í sambandi við þessa aths. hv. 3. þm. Reykv. vil ég benda á, að við 2. umr. þessa máls virtist mér koma fram hjá hæstv. atvmrh., að hann teldi felast í þessu frv. víðtækari heimild en hv. 3. þm. Reykv. telur að sé, og í því tilefni er brtt. mín flutt.