19.02.1945
Efri deild: 131. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1432 í B-deild Alþingistíðinda. (3937)
272. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga
Frsm. (Haraldur Guðmundsson):
Herra forseti. — Samkv. gildandi l. er árlega látin fram fara jöfnun milli hinna ýmsu sveitarfélaga á þeim kostnaði, sem þau hafa vegna framfærslumála, greiðslu ellilauna og örorkubóta og kennaralauna, þannig að endurgreiddir eru úr ríkissjóði níu tíundu af þeirri upphæð, sem einstök sveitarfélög greiða fram yfir meðallag.
Höfuðefni þessa frv. er það, að greiðslur þessar skulu ekki ná til kennaralauna og örorkubóta, heldur aðeins til framfærslumála. Það fé, sem ríkissjóður hefur lagt fram, en það eru 700 þús. kr., hefur ekki hrokkið síðustu ár, og ef engin breyting verður nú gerð, kemur til með að vanta um 1/2 millj. kr. En verði þessi breyt. gerð, vantar ekki nema 5–6 þús. Ástæðurnar, sem mæla með þessari breyt., eru einkum þær, að þær breyt., sem gerðar hafa verið á ellitryggingunum, gera ekki einungis óþarft, heldur jafnvel ranglátt, að taka þann lið með. Örorkubæturnar eru og nú að mestu komnar á ríkið, og með vaxandi dýrtíð hefur hluti sveitarfélaganna í greiðslu kennaralauna minnkað, og samkvæmt launal. verður hann mjög lítill. Þetta eru aðalástæðurnar fyrir því, að hætt skuli að taka tillit til þessara liða við greiðslu úr jöfnunarsjóði. Það sýnir sig, að þetta munar miklu, sé miðað við úthlutun 1943, en rétt er að geta þess, að sú breyt., sem gerð var á alþýðutryggingalöggjöfinni, orsakar, að ekki er rétt að breyta um of tölum frá 1943. Þá er gert ráð fyrir því í frv., að greiða megi úr jöfnunarsjóði til að ráða bót á sérstökum erfiðleikum sveitarifélag, eftir till. eftirlitsmanns sveitarstjórnarmálefna. Það veldur einatt nokkurri skriffinnsku að láta þetta ganga gegnum stjórnarráðið. og þykir einfaldara, að ráðh. geri það eftir till. yfirmanns sveitarstjórnarmálefna. Einnig er gert ráð fyrir, að ráðh. geti veitt fé úr sjóðnum til að koma betra skipulagi á sveitarstjórnarmálefni.
N. er sammála um að mæla með frv., en einn nm., hv. þm. Str., gat ekki mætt, og er mér ekki kunn afstaða hans.
Mér þykir rétt að taka það fram, að þegar gerðar hafa verið þær breyt. á tryggingalöggjöfinni, sem standa fyrir dyrum, verður eðlilega að breyta þessum l. til samræmis við það. En það er till. n.. að frv. verði samþ. eins og það liggur hér fyrir.