19.02.1945
Efri deild: 131. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1446 í B-deild Alþingistíðinda. (3977)

279. mál, bankavaxtabréf

Frsm. (Haraldur Guðmundsson):

Eftir þau ummæli, sem hér hafa fallið, er ég fús til að taka till. aftur til 3. umr. Ég skal geta þess viðvíkjandi því, sem hv. 6. þm. Reykv. sagði, að ég hafði athugað þetta, en ég sá þann galla, að á þann hátt eru báðir endar þessa máls á valdi sama aðila, og það tel ég óeðlilegt.