18.02.1944
Sameinað þing: 18. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í D-deild Alþingistíðinda. (4017)

20. mál, eftirlit með skipum

Páll Zóphóníasson:

Ég vil, vegna þess að ég skrifaði undir nál. með fyrirvara, segja fáein orð. Ég vil þá fyrst segja það, að ég er í einu og öllu sammála niðurstöðu meiri hl. allshn. og stend óskiptur með þeim. Hins vegar er ég ekki með öllum þeim forsendum, sem niðurstöðurnar eru byggðar á. Afstaða mín til nál. er því eingöngu byggð á því, að ég er ekki sammála forsendum till.