10.03.1944
Efri deild: 28. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 266 í B-deild Alþingistíðinda. (417)
40. mál, nýbygging fiskiskipa
Frsm. minni hl. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Eins og hv. þdm. er ljóst, þá hef ég aldrei verið sammála því, að þetta frv. yrði samþ. eins og það liggur fyrir hér, og skal ég ekki mikið fara út í það atriði. Og með því að ég hygg, að málinu hefði verið stefnt í þó nokkra hættu, ef það ætti að ganga til atkv. óbreytt, þótti mér skylt að halda um það fund í sjútvn. þessarar hv. d. Þykir mér vænt um að geta sagt frá því, að samkomulag hefur orðið um, að bornar væru fram tvær brtt. við frv., eins og það liggur nú fyrir. Er þess því vænzt, að hv. d. samþ. þessar brtt. við frv. og að fullt samkomulag náist einnig um það síðan í sameinuðu þingi.
Brtt. eru skrifl., og vil ég, með leyfi hæstv. forseta, lesa þær hér upp.
1. Við 3. gr. Greinin orðist þannig: Atvinnumálaráðherra skipar fimm manna nefnd, er hefur á hendi úthlutun fjár úr sjóðnum, að fengnum tillögum stjórnar Fiskifélags Íslands. Skulu fjórir þeirra skipaðir samkv. tilnefningu þingflokkanna, einn af hverjum flokki, en formaður án tilnefningar.
Nú óskar einhver styrks eða vaxtalauss láns til þess að láta smíða fiskiskip, og skal hann þá senda nefndinni umsókn um það. Umsókninni skal fylgja efnahagsreikningur umsækjanda og vottorð skattstjóra eða formanns skattanefndar um það, hver hafi verið aðalatvinna umsækjanda síðustu tvö ár. Enn fremur skal fylgja skýrsla um stærð skipsins, fyrirhugaða vélartegund og stærð og upplýsingar um umsamið eða áætlað kostnaðarverð.
2. Við 9. gr. 1. mgr. orðist svo:
Fiskveiðasjóður Íslands sér um útgáfu skuldabréfa fyrir lánum og tekur við greiðslu afborgana.“
Til skýringar fyrri brtt. skal ég geta þess, að breyt., sem með henni er gerð, er ekki fólgin í öðru en því, að 2. mgr. 3. gr. er látin falla burt, en í stað hennar er látin koma grein um það, að atvmrh. skipi fimm manna n., er hafi á hendi úthlutun fjár úr sjóðnum að fengnum tillögum Fiskifélags Íslands, o.s.frv. — Afleiðing af þessari breyt., ef samþ. verður, er svo sú, að 9. gr. er breytt á þann veg, sem greint hefur verið.
Eins og ég gat um áðan, hefur sjútvn. öll í heild orðið sammála um að flytja þessa brtt., og leyfi ég mér að afhenda hæstv. forseta hana með tilmælum um, að hann leiti afbrigða fyrir henni.
Ég skal svo ekki fjölyrða um þetta atriði. Það er þegar þaulrætt. Vænti ég þess, að hv. þdm. geti á það fallizt að samþ. þessa brtt. sjútvn., og einnig þá hins, að nú verði hér hægt að afgreiða málið í þessu formi án frekari átaka eða umræðna.