20.11.1944
Neðri deild: 77. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 311 í B-deild Alþingistíðinda. (42)

183. mál, nýbyggingarráð

Frsm. minni hl. ( Skúli Guðmundsson):

Ég vil vekja athygli hæstv. forseta á því, að nál. um þetta mál frá minni hl. er í prentun. Vil ég mælast til þess við hæstv. forseta, að hann taki ekki málið fyrir, fyrr en nál. minni hl. ásamt brtt., sem því fylgja, er komið fyrir augu hv. þm. og þeir hafa haft tækifæri til að kynna sér það.