06.03.1944
Sameinað þing: 26. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 155 í D-deild Alþingistíðinda. (4243)

51. mál, hafnargerð í Ólafsfirði

Forseti (GSv):

Ég hafði nú búizt við því, að umr. yrðu ekki langar um þetta mál. En horfur eru á, að það verði rætt nokkuð að sinni. Það voru á dagskrá nokkur fleiri mál, sem þurfa að verða tekin fyrir, og þegar kl. er 4, verður fundi frestað til kl. 5. Umr. um þetta mál er frestað.