07.03.1944
Sameinað þing: 27. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 185 í D-deild Alþingistíðinda. (4282)

29. mál, Suðurlandsbraut um Krýsuvík

Forseti (GSv):

Út af þessari aths. hv. 6. þm. Reykv. vil ég benda á, að hér er aðeins um að ræða heimild til ríkisstj., svo að hún hefur á sínu valdi að gera við till., hvað sem henni sýnist. Ríkisstj. hefur hins vegar ekkert látið frá sér heyra um þetta atriði, og tel ég mér því ekki fært að vísa till. frá. Úrskurða ég því, að þessi till. verði látin ganga undir atkv.