03.03.1944
Sameinað þing: 25. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 190 í D-deild Alþingistíðinda. (4295)
58. mál, launauppbót til embættis- og starfsmanna ríkisins vegna barna á framfærslualdri
Flm. (Sigurður Kristjánsson):
Herra forseti. Það, sem ég vildi segja, er aðeins það, að þessi útgjöld hafa aldrei verið í fjárl. Það var því afsakanlegt, þó að fjvn. sæi ekki ástæðu til að taka þau í fjárl., og það er ríkisstj. sjálf, sem hefur látið það falla niður úr sínu frv. En ég vildi taka það fram, að það er mjög gamalt form fyrir því að láta vilja Alþ. í ljós að veita heimild, og því held ég, að ríkisstj. geti ekki skoðað það nema sem vilja Alþ., þegar Alþ. veitir henni heimild til einhvers hlutar, eins og hún krefst í þessu máli.