08.03.1944
Sameinað þing: 28. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 198 í D-deild Alþingistíðinda. (4306)

58. mál, launauppbót til embættis- og starfsmanna ríkisins vegna barna á framfærslualdri

Páll Zóphóníasson:

Þar sem allir hv. þm. áttu þess kost, þá er fjárl. voru samþ., að koma fram till. um breyt. á þeim, þ. á m. um ómagauppbætur, en engin till. kom í þá átt, verð ég að líta svo á, að till. sú, sem hér liggur fyrir, veiti ríkisstj. enga heimild til að greiða þær, og treysti ég, að hún geri það ekki, því að slík greiðsla yrði utan við fjárl., en þar átti heimild til hennar að koma. Ég segi því nei.