29.02.1944
Sameinað þing: 24. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 248 í D-deild Alþingistíðinda. (4387)

41. mál, samgöngubætur frá Reykjavík austur í Ölfus

Gísli Jónsson:

Út af áskorun hv. þm. V.-Sk. vil ég segja, að ég er tilbúinn að ganga með honum upp til vegamálastjóra og rannsaka málið, og á næsta fundi mun hann svo væntanlega kyngja þessu eins og góðri mjólk frá samsölunni.