06.03.1944
Sameinað þing: 26. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 258 í D-deild Alþingistíðinda. (4420)

57. mál, gufuhverir

Flm. (Bjarni Benediktsson):

Ég vil að gefnu tilefni lýsa yfir, að ég er þessu öllu ókunnugur og get ekkert um það dæmt. Ég tel líklegt, að eitthvað af þessu sé almenningseign og ríkið og sveitarfélagið eigi eitthvað, og kannske er eitthvað eign einstakra jarða. Tel ég sjálfsagt, að það verði athugað, og skal ég styðja að því að svo miklu leyti sem það kemur undir mig. Ég skal taka fram, að Reykjavíkurbær á þarna ekkert land og hefur ekki verið í neinum útvegum með það, en ég tel þetta skipta svo miklu máli, að ég vil vera þátttakandi í að upplýsa til hlítar, hvernig eignarréttinum sé háttað.