15.06.1944
Efri deild: 34. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 273 í B-deild Alþingistíðinda. (444)

76. mál, þjóðfáni Íslendinga

Lárus Jóhannesson:

Herra forseti. — Í tilefni af brtt. hv. þm. Barð. vil ég taka það fram, að mér sýnist hún óþörf og varla þess verð að hrekja frv. milli deilda út af henni. Ég tel, að orðalag 11. gr. geti ekki á nokkurn hátt valdið misskilningi, og þó að ég skuli játa, að frv. hefði getað verið betur orðað, finnst mér ekki nauðsynlegt, að brtt. verði samþ., þar sem það mundi hafa í för með sér, að frv. yrði enn að fara milli deilda.