10.03.1944
Sameinað þing: 29. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 274 í D-deild Alþingistíðinda. (4447)

63. mál, fáninn

Gísli Jónsson:

Ég vil taka það fram, að það er ekki ætlazt til þess, þó að brtt. verði samþ., að ríkisstj. hafi neina heimild t. d. til að gera samning um fánann, hvorki við SÍS né önnur samvinnufélög. Hins vegar er leitt að heyra, að það skuli vera meiri áhugi hjá hv. þm. Snæf. að vera með skæting en á málinu sjálfu. Mér þykir það leitt.