10.03.1944
Sameinað þing: 29. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 281 í D-deild Alþingistíðinda. (4482)

72. mál, læknishéruð

Eysteinn Jónsson:

Ég óttast, að með þessari brtt. verði verksvið n. gert óþarflega víðtækt og seint hægt að búast við fullnaðaráliti hennar, en brtt. sú, sem eftir er, mun verða til góðs, ef hún er samþ., og segi því nei.

Brtt. 241 samþ. með 34 shlj. atkv.

Tillgr., svo breytt, þar með ákveðin.

Brtt. 209,2 (ný fyrirsögn) samþ. án atkvgr.

Till. vísað til síðari umr. með 33 shlj. atkv., með fyrirsögninni:

Till. til þál. um skipun nefndar til að athuga breytingar á skipun læknishéraða og þátttöku ríkissjóðs í kostnaði við byggingu og rekstur læknabústaða og sjúkraskýla.