20.06.1944
Sameinað þing: 35. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 290 í D-deild Alþingistíðinda. (4517)

83. mál, frestun á fundum Alþingis

Lárus Jóhannesson:

Á fundi Nd. í morgun beittu sjö þm. móti 17 því valdi, sem þeim er gefið í þingsköpum, til að stöðva við 3. umr. mál, sem þar lá fyrir og ég hafði flutt í Ed. og hafði gengið gegnum þá d., svo að það gat ekki hlotið afgreiðslu. Ég mun því greiða atkv. á móti afbrigðum nú. (PM: Fannst hv. þm. það vera til fyrirmyndar?)