20.11.1944
Neðri deild: 77. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 312 í B-deild Alþingistíðinda. (46)

183. mál, nýbyggingarráð

Frsm. meiri hl. (Ásgeir Ásgeirsson):

Hæstv. ríkisstj. leggur nokkra áherzlu á, að þetta mál geti gengið fljótt gegnum þingið. Málið er einnig þannig vaxið, að það virðist ekki þurfa langan þingtíma til afgreiðslu. En fyrst hv. þm. V.-Húnv. óskar þess eindregið, að 2. umr. fari ekki fram, fyrr en nál. minni hl. er fram komið, þá vil ég ekki halda till. minni til streitu, en vil beina þeirri fyrirspurn til hæstv. forseta, að ef 2. umr. fer fram á morgun, hvort ekki sé hægt að taka þá 3. umr. einnig á morgun á síðdegisfundi.