20.11.1944
Neðri deild: 77. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 312 í B-deild Alþingistíðinda. (47)
183. mál, nýbyggingarráð
Eysteinn Jónsson:
Ég vil aðeins beina þeirri ósk til hæstv. forseta að setja okkur, sem fylgjum minni hl., ekki í þann vanda að greiða atkv. um afbrigði, áður en nál. liggur fyrir. Við höfum enga löngun til að tefja málið á nokkurn hátt og mundum áreiðanlega verða með, að 3. umr. yrði tekin með afbrigðum, ef það þykir henta.