19.06.1944
Efri deild: 38. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1836 í B-deild Alþingistíðinda. (4770)

82. mál, endurveiting borgararéttinda

Pétur Magnússon:

Ég álít, að þetta frv. sé þess eðlis, að rétt sé að athuga það í n. Þetta er sjaldgæf breyt. á l. og þarf fullkomna meðferð hér á Alþ. Ég held því fast við það, að frv. fari til n. að lokinni þessari umr., en það mun vera heimilt samkvæmt þingsköpum. Ég vil því endurtaka till. hv. 3. landsk. um, að frv. verði vísað til allshn. að lokinni þessari umr.