19.06.1944
Efri deild: 39. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1836 í B-deild Alþingistíðinda. (4773)

82. mál, endurveiting borgararéttinda

Frsm. meiri hl. (Lárus Jóhannesson):

Herra forseti. — Allshn. hefur skotið á fundi, þ.e.a.s. þeir af nm., sem viðstaddir eru, hæstv. forseti, hv. 1. þm. Eyf. og ég. Til hv. 6. þm. Reykv. hefur ekki náðst, en 9. landsk. þm. er veikur. Við þrír erum sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt. Ég álít enga hættu því samfara, þar sem aðeins er um heimildarl. að ræða.

Ég óska eftir skjótri afgreiðslu þessa máls.