20.06.1944
Neðri deild: 41. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1837 í B-deild Alþingistíðinda. (4782)

82. mál, endurveiting borgararéttinda

Gunnar Thoroddsen:

Ég tel sjálfsagt, að n. geti afgreitt málið á stuttri stund, jafnvel þótt ekki næðist til allra nm. En hér er um talsvert þýðingarmikla breyt. að ræða. Við erum nýlega búnir að afgreiða með afbrigðum annað mál, sem felur í sér breyt. á refsilöggjöf, og mér finnst ekki koma til mála að hleypa nú þessu frv. líka í gegn án athugunar.