20.11.1944
Neðri deild: 77. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 312 í B-deild Alþingistíðinda. (48)
183. mál, nýbyggingarráð
Forseti (JörB):
Ég hygg, eftir því sem fram er komið, að það verði bezta meðferð þessa máls, að 2. umr. verði frestað að þessu sinni, svo að þær brtt., sem gerðar hafa verið og eru nú í prentun, geti legið fyrir, þegar umr. og atkvgr. fer fram. Ég mun þá láta 2. umr. fara fram á morgun og svo einnig 3. umr., svo að það þurfi ekki að tef ja afgreiðslu málsins, þó að 2. umr. verði frestað nú. Er það þá á valdi d., hvort hún heimilar svo skjóta afgreiðslu, en ég vænti, að þannig geti tekizt til.