28.09.1944
Efri deild: 51. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 278 í B-deild Alþingistíðinda. (484)

85. mál, innheimta ýmissa gjalda 1945 með viðauka

Frsm. (Pétur Magnússon):

Fjhn. hefur haft þetta mál til meðferðar, og þar sem hún telur vafalaust, að ríkissjóður þurfi að halda á þeim tekjum, sem um er að ræða í frv., hefur hún orðið sammála um að mæla með framgangi þess. Ég vil vekja athygli á því, að ekki getur talizt heppilegt að framlengja mörg l. um sama efni á hverju ári. Heppilegra væri að framlengja l. til fleiri ára í einu, ef um framlengingu væri að ræða. Mér þykir rétt að vekja athygli á þessu, þó að enginn hæstv. ráðh. sé raunar viðstaddur.