18.09.1944
Sameinað þing: 44. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 337 í D-deild Alþingistíðinda. (4912)

114. mál, framleiðslutekjur þjóðarinnar

Flm. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. — Það er að vísu gert ráð fyrir því, að þessi þál. kunni að hafa einhvern kostnað í för með sér, en það munu varla verða mikil útgjöld, því að ég geri ráð fyrir því, að ríkisstj. mundi fela Hagstofu Íslands að gera þessa útreikninga. Er því ekki líklegt, að þetta mundi kosta mikil aukaútgjöld, og hef ég því lagt til, að till. verði vísað til allshn., en ekki fjvn.