01.03.1945
Neðri deild: 141. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1953 í B-deild Alþingistíðinda. (4986)

257. mál, veltuskattur

Ingólfur Jónsson:

Þar sem fyrir liggur yfirlýsing frá hæstv. landbrh. um það, að veltuskatturinn verði þannig tekinn, að hann hafi engin áhrif á útborgað verð landbúnaðarvara til bænda, þykir mér mikilvæg leiðrétting fengin á skattinum og tel því rétt að samþ. frv., enda liggja ekki fyrir aðrar heppilegri till. um tekjuöflun ríkissjóði til handa.