02.03.1945
Efri deild: 140. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1953 í B-deild Alþingistíðinda. (4989)

257. mál, veltuskattur

Bjarni Benediktsson:

Herra forseti. — Ég verð að biðja um, að atkvgr. um málið verði frestað til morguns. Það vantar nú hér þrjá hv. þm. af Sjálfstfl., og ég efast um, að líkur séu til þess, að þeir verði við á þessum fundi. Hæstv. fjmrh. er veikur, og vitað er um forföll hjá hv. 2. þm. Árn. — [Fundarhlé.]