09.10.1944
Neðri deild: 61. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 280 í B-deild Alþingistíðinda. (499)
122. mál, Brunabótafélag Íslands
Frsm. (Garðar Þorsteinsson):
Þessu stjfrv. var vísað til allshn., þegar það kom hingað í d. úr Ed., og mælir n. með að samþ. það óbreytt. Frv. heimilar að láta fara fram athugun á vátryggingarverði húsa og færa það til samræmis við vísitölu húsbyggingarkostnaðar, eins og hann er eða verður framvegis, í öðru lagi að breyta 7. gr. l. frá 1942, þar sem tiltekin er upphæð sú, sem félagið mátti hafa í áhættu, en nú þykir réttara að hafa það ákveðna prósenttölu af vátryggingarupphæð. Með því móti er félagið frjálsara í samningum um endurtryggingu, en endurtryggingarsamning, sem rennur út 15. þ. m., þyrfti félagið að endurnýja fyrir þann dag, svo að þetta frv. þyrfti að verða að l. sem allra fyrst.