25.10.1944
Sameinað þing: 61. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 349 í D-deild Alþingistíðinda. (5054)

177. mál, rannsóknarstöð á Keldum

Pétur Ottesen:

Að fengnum þessum upplýsingum frá hæstv. fjmrh., get ég fallið frá ósk minni um, að málið verði tekið til meðferðar nú. Ég verð að leggja þann skilning í orð hæstv. fjmrh., að málinu sé borgið, þó að nokkur frestur verði á afgreiðslu till.