15.12.1944
Sameinað þing: 76. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 460 í D-deild Alþingistíðinda. (5251)

188. mál, brú á Jökulsá á Fjöllum

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. — Ég ætla ekki að andmæla í neinu því, sem hv. 1. þm. Árn. sagði. En benda vil ég honum á það, að það eru til fjögur önnur sundvötn, sem kljúfa læknishéruð og gera álíka krók á leiðir manna og Hvítá gerir nú fyrir þá, sem þurfa úr Hreppum að Laugarási.