05.02.1945
Neðri deild: 121. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 544 í D-deild Alþingistíðinda. (5431)

274. mál, bifreiðar handa læknishéruðum

Forseti (JörB):

Það var sakir þess, að þetta mál var tekið fyrir núna, að komið var að því að úthluta nokkrum bifreiðum, þar eð n. sú, er sjá á um úthlutunina, mun nú vera um það bil að taka við bifreiðunum.

Mér skilst nú, að unnt muni verða á þessum fundi, ef ráðizt verður í að breyta þessum vatill., sem hv. 2. þm. S.-M. hafði á orði, mundi vinnast tími til þess, þótt málið verði ekki tekið út af dagskrá eða því frestað. Ég vildi skjóta þessu fram hv. n. til athugunar.