10.01.1945
Neðri deild: 101. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2015 í B-deild Alþingistíðinda. (5558)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Eysteinn Jónsson:

Ég mun þá taka annað atriði, sem ég ætlaði að spyrja um. Ég hef tekið eftir, að liðið er æði langt síðan tekið var á dagskrá mál, sem búnar eru um tvær umr. og fjallar um gerð flugvalla. Vil ég spyrja hæstv. forseta, hvort ekki sé von á, að það komi fljótlega á dagskrá.